Íslenski söfnuðurinn í London

Íslenski söfnuðurinn í London Söfnuður Íslendinga í London og á Bretlandseyjum. Prestsþjónusta á íslensku, samfélag, fermingarfræðsla og sunnudagaskóli.

Íslenski söfnuðurinn í London var stofnaður árið 1983. Þá hafði sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, síðar vígslubiskup, verið ráðinn til London sem prestur meðal annars til að greiða götu þeirra fjölmörgu sjúklinga sem hingað komu til lækninga frá Íslandi á þessum tíma. Staða fastráðins prests í London var lögð niður árið 2009, en í dag eru það sr. Sjöfn Mueller Thor sem þjónar Íslendingum í London. S

afnaðarnefnd Íslensku kirkjunnar í London – 1 des 2020

PRESTUR
Séra Sjöfn Mueller Thor [email protected]

STJÓRNIN
Formaður: Inga Lísa Middleton
Varaformaður: Drífa Arnþórsdóttir
Gjaldkeri: Inga Lára Hjartardóttir
Ritari: Gunnhildur Bárðardóttir-Dunn
Vefstjóri: Auður Ossurarson

VERKEFNASTJÓRI
Helen Whitaker

NEFNDARMENN OG KONUR
Guðrún Jensen
Björg Cauthery
Andrew Cauthery
Guðrún Sveinbjarnardóttir
Erla Kiernan
Hafdís Bennett
Eva Gunnarsdóttir

KÓRSTJÓRI
Helgi Rafn Ingvarsson

Vormessa íslenska safnaðarins í London, verður haldin 22. Mars kl. 15.00 í Norsku kirkjunni, 1 St. Olav's Square, Albion...
06/03/2026

Vormessa íslenska safnaðarins í London, verður haldin 22. Mars kl. 15.00 í Norsku kirkjunni, 1 St. Olav's Square, Albion Street, Rotherhithe, London, SE16 7JB. Athugið breyttan messutíma og breytta staðsetningu. Að sjálfsögðu verður Sunnudagaskólinn á sínum stað og Íslendingafélagið verður með hið frábæra Páskaeggjabingó að kaffidrykkjunni lokinni, þar sem vinningar eru að sjálfsögðu íslensk páskaegg!
Við hlökkum til að sjá ykkur og að heimsækja Norðmennina svona einu sinni.
https://www.islenskakirkjan.com/post/vorguðsþjónusta-í-london

Takið daginn endilega frá fyrir vor messuna okkar í London, sem verður haldin 22. Mars kl. 15.00 í Norsku kirkjunni 1 St...
06/02/2026

Takið daginn endilega frá fyrir vor messuna okkar í London, sem verður haldin 22. Mars kl. 15.00 í Norsku kirkjunni 1 St. Olav's Square, Albion Street, Rotherhithe, London, SE16 7JB. Athugið breyttan messutíma og breytta staðsetningu. Að sjálfsögðu verður Sunnudagaskólinn á sínum stað og Íslendingafélagið verður með hið frábæra Páskaeggjabingó að kaffidrykkjunni lokinni.
Við hlökkum til að sjá ykkur og að heimsækja Norðmennina svona einu sinni.
https://www.islenskakirkjan.com/post/vorguðsþjónusta-í-london

Nú er mikið fjör framundan hjá okkur í Íslenska söfnuðinum í London. Um næstu helgi, laugardaginn 6. december höldum við...
01/12/2025

Nú er mikið fjör framundan hjá okkur í Íslenska söfnuðinum í London.
Um næstu helgi, laugardaginn 6. december höldum við til Manchester þar sem verður messað í St. Mary's Church við Church Lane, Prestwich, M25 1AN. Íslenski Kórinn syngur undir stjórn Helga R. Ingvarssonar og Sr. Sjöfn Müller Þór þjónar. Organisti er Simon Mercer. Að Guðsþjónustu lokinni verður Pálínuboð og Jólaball í i Prestwich Conservative Club 35 Church Lane, Prestwich, M25 1AN. Við biðjum alla að koma með kökur eða góðgæti í Pálínuboðið.
Sunnudaginn 7. desember er svo Guðsþjónustan í Sænsku Kirkjunni í 6 Harcourt St, London W1H 4AG, og á eftir er jólaball og kaffi. Við biðjum ykkur um að koma með kökur á hlaðborðið.
Við hlökkum til að sjá ykkur.

JÓLABALL í LONDONNú fer að styttast í aðventuna og kominn tími til að taka daginn frá fyrir Jólaguðsþjónustu og jólaball...
09/11/2025

JÓLABALL í LONDON
Nú fer að styttast í aðventuna og kominn tími til að taka daginn frá fyrir Jólaguðsþjónustu og jólaball í London 7. desember kl.14.00. Guðsþjónustan verður eins og venjulega full af hátíðlegum söng sem er í höndum Helga og Íslenska kórsins í London og börnin úr Íslensku Skólanum koma og lesa og syngja. Að Guðsþjónustunni lokinni verður Jólaballið haldið og við fáum heimsókn frá jólasveininum og borðum kökur og drekkum kaffi saman. Við biðjum ykkur öll um að koma með kökur og góðgæti á kökuhlaðborðið. Við hlökkum til að sjá ykkur.
https://www.islenskakirkjan.com/event-details-registration/jolagudsthjonusta-og-jolaball-i-london-4

Það styttist í næstu Guðsþjónustu en hún verður haldin næstkomandi Sunnudag 5.Október í Sænsku Kirkjunni kl. 14.00 6 Har...
30/09/2025

Það styttist í næstu Guðsþjónustu en hún verður haldin næstkomandi Sunnudag 5.Október í Sænsku Kirkjunni kl. 14.00 6 Harcourt St, London W1H 4AG
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað undir stjórn Brynju.
Fermingarfræðsla hefst kl. 10.15 í Sænsku Kirkjunni.
Hlökkum til að sjá ykkur.

Haustguðsþjónustan okkar í London verður haldin í Sænsku Kirkjunni 5. október kl 14.00.Íslenski Kórinn í London syngur u...
07/09/2025

Haustguðsþjónustan okkar í London verður haldin í Sænsku Kirkjunni 5. október kl 14.00.
Íslenski Kórinn í London syngur undir stjórn Helga R. Ingvarssonar, Robin Walker leikur á orgelið og Sr. Sjöfn Müller Þór þjónar.
Boðið verður upp á fermingarfræðslu kl. 11.00, á undan messunni. Staðsetning fermingarfræðslunnar verður auglýst síðar en skráning í fræðsluna fer fram hjá Sr. Sjöfn á sjofnthor hjá google.com

Við hlökkum til að sjá ykkur!
https://www.islenskakirkjan.com/post/nú-fer-að-líða-að-guðsþjónustu-í-london

Nú fer að líða að 17. júní hátíðarhöldum Íslensku Kirkjunnar í London og Félags Íslendinga í London en þau fara fram í D...
23/05/2025

Nú fer að líða að 17. júní hátíðarhöldum Íslensku Kirkjunnar í London og Félags Íslendinga í London en þau fara fram í Dönsku Kirkjunni, Sunnudaginn 15. júní kl. 14.00.
Að þessu sinni verður mikil tónlistarveisla í Guðsþjónustunni en Íslenski Kórinn ásamt Helga R. Ingvarssyni kórstjóra fá heimsókn frá Söngsveitinni Fílharmóníu ásamt Magnúsi Ragnarssyni stjórnanda sveitarinnar.
Sandra Thomsen Halldórsdóttir verður fjallkona. Brynja Herbertsdóttir sér um Sunnudagaskólann og Félag Íslendinga grillar íslenskar pylsur. Hoppikastalinn verður að sjálfsögðu á sínum stað.

„Söngsveitin Fílharmónía var stofnuð árið 1959. Í gegnum árin hefur kórinn flutt fjölbreytta tónlist frá ýmsum tímabilum, allt frá sígildum kórverkum til léttari tónlistar af ýmsu tagi. Á undanförnum árum hefur Söngsveitin Fílharmónía reglulega tekið þátt í tónleikum á vegum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, s.s. „Klassíkinni okkar“, Sálumessu Brahms, Carmina burana eftir Carl Orff og kvikmyndatónleikum með myndinni Harry Potter og fanginn frá Azkaban svo eitthvað sé nefnt. Þá hefur kórinn einnig komið fram með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Ungsveit Sinfóníunnar og flutt Requiem eftir Mozart og 9. Sinfóníu Beethovens. Þá hefur kórinn tekið þátt í kórakeppnum á erlendri grund og hlotið viðurkenningar fyrir, síðast í Salzburg sumarið 2022. Söngsveitin Fílharmónía hefur á undanförnum árum unnið að upptökum á íslenskri kórtónlist og gefið út á helstu tónlistar streymisveitur. Stjórnandi Söngsveitarinnar Fílharmóníu er Magnús Ragnarsson.“

Við hlökkum til að sjá ykkur

Við hlökkum til að sjá ykkur í Þjóðhátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 15. júní 2025 kl 14.00. Íslenski kórinn syngur og það...
14/05/2025

Við hlökkum til að sjá ykkur í Þjóðhátíðarguðsþjónustu sunnudaginn 15. júní 2025 kl 14.00. Íslenski kórinn syngur og það verður sunnudagaskóli með Brynju Herberts. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Hlökkum til að sjá ykkur í Dönsku Kirkjunni, 4 St Katharine's Precinct, London NW1 4HH https://www.islenskakirkjan.com/event-details-registration/thjodhatidargudsthjonusta

Nú fer aldeilis að styttast í Vormessuna. Eftir viku og einn dag er kominn tími til að safnast saman í Sænsku Kirkjunni,...
22/03/2025

Nú fer aldeilis að styttast í Vormessuna. Eftir viku og einn dag er kominn tími til að safnast saman í Sænsku Kirkjunni, eiga góða stund saman, hlusta á börnin syngja og njóta kórsöngs frá Íslenska kórnum. Við ætlum að leggja áherslu á mæður í þessari messu á mæðradeginum svo það er kjörið að koma við og taka mömmu með sér. Á eftir verður páskaeggjabingó og nammisala og auðvitað kaffi og kökur. Við hlökkum til samverunnar á Sunnudaginn kemur, 30.3 2025 kl 14.00 í Sænsku kirkjunni.

https://www.islenskakirkjan.com/event-details-registration/maedradagurinn-i-islensku-kirkjunni-i-london

Hlökkum til að sjá ykkur í Mæðradagsmessu 30. mars kl 14.00 í Sænsku Kirkjunni í London. Íslenski Kórinn syngur, börn úr...
14/03/2025

Hlökkum til að sjá ykkur í Mæðradagsmessu 30. mars kl 14.00 í Sænsku Kirkjunni í London. Íslenski Kórinn syngur, börn úr Íslenskuskólanum taka þátt og svo er kaffi og páskaeggjabingó á eftir. Endilega komið með eitthvað góðgæti á kaffiborðið.

Komdu með í fermingarbúðir í Svíþjóð í maí. Við ætlum að hitta  íslensk börn frá Norðurlöndunum uppi í sveit í Svíþjóð o...
24/02/2025

Komdu með í fermingarbúðir í Svíþjóð í maí. Við ætlum að hitta íslensk börn frá Norðurlöndunum uppi í sveit í Svíþjóð og upplifa ekta fermingarbúðastemmingu. Skráning er til 17. mars hjá Sr. Sjöfn. Kynningarfundur verður haldinn á Zoom 13. Mars kl. 19.30 að evrópskum tíma, 18.30 UK tíma. Hafðu samband á [email protected] til þess að fá hlekk og skráningareyðublað. Fermingarbörn 2025 og 2026 eru velkomin með.
Ertu búin að fermast? Komdu þá með sem leiðtogi!
Ef þú býrð í London (UK), Lúxemborg, Belgíu, Þúskalandi, Hollandi eða í nágrenni, þá eru þessar fermingarbúðir pottþétt eitthvað fyrir þig.
https://www.islenskakirkjan.com/event-details-registration/fermingarbudir-i-svithjod-9-11-mai

Address

2a Hans Str
London
SW1XOJE

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íslenski söfnuðurinn í London posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Place Of Worship

Send a message to Íslenski söfnuðurinn í London:

Share